aftur á upphafssíðu

Sjórinn við Ísland er mjög frjósamur og að þar er að finna ein auðugustu fiskimið jarðar. Ástæðan fyrir hinni miklu frjósemi er að íslenska hafsvæðið er á mótum heitra og kaldra strauma sem veldur stöðugri uppblöndun sjávar. Hlýr Atlantsstraumur kemur að sunnan (rauðar örvar) en að norðan kemur kaldur Pólstraumur (bláar örvar). Við straummótin berst næringaríkur djúpsjór stöðugt upp í yfirborðslögin og tryggir samfelldan vöxt plöntusvifsins sem eru undirstaða fæðukeðjunnar í hafinu. Fyrir norðaustan landið blandast Pólstraumurinn hlýjum sjó austan úr Noregshafi (grænar örvar). Meðfram landinu streymir strandstraumurinn (svartar örvar) en hann hefur nokkuð lægri seltu en sjórinn fyrir utan, því hann blandast ferskvatni úr ám og fljótum af landi á leið sinni umhverfis landið.


 
Vefur Namsgagnastofnunnar